29 Atriði við karlmenn og kynlíf, Sem fara í taugarnar á konum.

Stal þessu einhvers staðar á netinu;)

1. Kyssa ekki nóg: Langur og góður koss er alltaf besti forleikurinn. Ef menn nenna ekki að hita konuna almennilega upp geta þeir bara gleymt þessu.

2. Sleikja eyrun; Einhver hefur komið því inn í hausinn á karlmönnum að konur elski að láta sleikja á sér eyrun. Smá nart í sneplana kann að vera í lagi en þegar tungan er komin inn í eyrað er nóg komið.

3. Illa rakaðir karlmenn: Þeir líta vel út á myndunum en það er ekki gott að kyssa þá. Karlmönnum er bent á að sleikja sandpappír til að upplifa svipaða tilfinningu.

4. Kremja brjóstin: Þetta eru ekki stressboltar sem á að kremja eins fast og mögulegt er. Þetta er næmt svæði og því þarf að fara varlega, sérstaklega í kringum geirvörturnar.

5. Bíta í geirvörturnar: Allt í góðu lagi með að sleika eða kyssa en þegar næmar geirvörturnar verða fyrir biti getur slokknað á ákveðnum logum í konunni.

6. Snúa geirvörtunum: Hvað er málið með að meiða geirvörturnar? Ef það er eitthvað sem konur vilja ekki þá er það að láta snúa upp á geirvörturnar á sér eins og þú værir að skipta um útvarpsstöð á útvarpinu í bílnum þínum.

7. Gleyma ákveðnum líkamshlutum: Konan hefur fleiri svæði en bara brjóst og píku sem hægt er að gæla við. Axlir, háls, bak og rass eru dæmi um líkamsparta sem gjarnan verða útundan.

8. Hjálpa ekki við að klæða úr: Ekki liggja bara og bíða eftir að hún fari úr. Ef þú vilt virkilega fá hana úr fötunum, hjálpaðu henni þá.

9. Gleyma smokknum: Það er strákurinn sem notar hann og það er hann sem á að útvega hann. Þannig ER það bara.

10. Ráðast beint á snípinn: Snípurinn er viðkvæmur. Ekki þrýsta, Snúa eða sjúga. Reyndu frekar að strjúka varlega í kring um snípinn í staðinn fyrir að ráðast beint á hann og hamast bara á honum.

11. Taka pásur í miðjum klíðum: Pása jafngildir endalokum hjá konum. Ef menn eru að gera hlé í miðjum klíðum þarf að byrja á öllu ferlinu upp á nýtt. Taktu því frekar bara rólega inná milli en ekki hætta.

12. Klæðir hana úr í vitlausri röð: Engin kona vill líta heimskulega út og það er heimskulegt að vera í peysu og sokkum en engum buxum.

13. Of fljótir að klæða úr: Þolinmæði er lykillinn að velgengni í þessum efnum eins og svo mörgu öðru. Ekki vera of æstur. Það gefur röng skilaboð.

14. Klæða sjálfa sig úr í vitlausri röð: Röð er: Peysa, sokkar og buxur og brækur. Fátt er heimskulegra en maður í skyrtu og sokkum með tippið lafandi undan skyrtunni.

15. Fá það of fljótt: Þetta eru svo sem ekki neinar nýjar fréttir og eina ráðið er að hafa vara áætlun ef menn klára skotfærin áður en orustunni lýkur.

16. Fá það of seint: Þó þú getir hamast í 2 tíma án þess að fá það, þýðir það sko alls ekki
að þú sért Casanova. Allt verður leiðinlegt á endanum!!?

17. Spyrja hvort hún hafi fengið það: Annað hvort veistu að hún hafi fengið það eða ekki en í guðanna bænum ekki spyrja svona heimskulega.

18. Fara of varlega í munngælurnar: Þú ert ekki kettlingur að lepja mjólk. Notaðu tunguna og vertu óhræddur.

19. Halda um höfuð konunnar í munnmökum: Konur þola þetta ekki. Ok. Ron Jeramy kemst upp með þetta en málið er einfalt. Konur fíla þetta ekki.

20. Brundur á bragðlaukana: Fæstum finnst saltvatn blandað í eggjahvítu vera gott og minnihluti kvenna er ekki fyrir það að fá sæði upp í sig. Gefðu henni allavega séns á að forða sér áður en þú skýtur.

21. Herma eftir klámmyndum: Klámmyndir eru skemmti- en ekki fræðsluefni. Jenna Jameson er ekki samnefnari yfir raunverulegar konur og langanir þeirra.

22. Láta konuna gera alla vinnuna: Það getur verið gott að hafa hana ofaná en ekki í 2 tíma. Reyndu að vera aktívur og passíur til skiptis.

23. Spyrja ekki hvort þær vilji fá það í rassinn: Konur eru ekki hrifnar af því að fá það óvænt upp í rassinn og það þýðir ekkert að segja að þú hafir hitt í vitlaust gat. ?Það er litlu skárra jafnvel þó þú sért ekki að ljúga.

24. Putta í rassgatið: Þótt sumum finnist gott að fá eitthvað í rassinn er ekki þar með sagt að öllum konum finnist það. Reyndu aðeins að skynja stemminguna og vertu ófeiminn við að spyrja.

25. Gera sogbletti: Erum við ennþá í 12 ára bekk.

26. Gefa skipanir: Þetta er ekki hundur og henni finnst óþolandi að fá skipanir nema hún bókstaflega biðji þig um það. Karlrembur hafa auk þess sjaldnast þótt góðar í rúminu.

27. Ófjölbreytni: Sama rútínan og sömu stellingarnar verða leiðinlegar eins og allt annað eftir ákveðna notkun. Reyndu að vera fjölbreyttur og ekki festast í sama farinu.

28. Klæmist í rúminu: Sumum finnst gaman að klæmast en þá þurfa menn að vita hvað þeir eru að segja. Í þessari deild er mjög auðvelt að fara yfir strikið og misbjóða dömunni.

29. Hætta um leið og þeir eru búnir: Dæmið er ekki búið fyrr en allir eru búnir að fá sitt! Konur þola ekki karlmenn sem líta svo á að kynlífið sé búið bara vegna þess að þeir eru búnir að fá það.

verði ykkur að góðu;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mmmm,,,mig langar í tippi Þetta e snilld!! samt sumt sem ég er ekki samála en það er bara ég...kinky bitch

Hildur Kjáni;) (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 18:58

2 identicon

Bwhahaha Hildur ég er nokkuð sammála þér með nokkur atriði hehhe

Una (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 19:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband