AllaRotta

Hey muniði ekki eftir þegar þeir sem sóttu Dátann ört voru kallaði dátarottur? Ég held að það stefni allt í það að ég verði allarotta;) hehe

Arkaði ein niðrí bæ í gær eftir 12 tíma vinnudag og langaði í bjór. Svo sat ég bara með GÖMLU KÖRLUNUM og spjallaði við þá;) Ég ætlaði nú að hitta ákveðinn aðila þarna en hann lét sig hverfa og kom ekki aftur fyrr en ég var búin að finna mér tvo unga til að vinna mig í pool. Þetta kallar maður vini sína:S hehe En það var bara mjög fínt þó að ég hafi nú ætlaði að fara heim miklu fyrr en það var einhver sem fyllti alltaf glasið mitt og maður má náttla ekki leifa bjór.

Maður fer nú alltaf á smá EGÓTRIPP þarna því það er alltaf verið að segja manni hvað maður sé fallegur og flottur!!! Kosturinn við að búa á nýjum stað þar sem allt nýtt kjöt er fallegt og flott:P hehe ég er allavegana skárri en Tékkarnir;) haha

Það er svo stíf dagskrá í kvöld, er að sjá um tónleikana með RAGNHEIÐI GRÖNDAL. Er svo búin að lofa mér í mat á tveimur stöðum. Svo eru tvö böll hérna líka þannig að ég hugsa að maður þurfi að láta sjá sig þar sem maður er svo mikið CELEB hérna;) bwahahah

Jæja ég held að EGÓVÍMAN sé að renna af mér:P hehehe það snar rann af mér eftir árás af helvítis ROÐAMAUR!!!! ég sem er nýbúin að láta eitra:S Held að þeir búi í hárinu á mér, obbobbojjjjj

Allir að skella sér á tónleika og ball í kvöld;)

Ególingur kveður að sinni;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband