23.9.2007 | 14:53
Komin tími á blogg frá mér =))
Heldur betur komin tími á blogg frá mér hehe en eins og flestir vita þá gifti ég mig 11 ágúst og var sá dagur hreint út sagt æðislegur,,heppnaðist allt ótrúlega vel fyrir utan rigninguna sem þurfti að ausa á okkur þegar við komum úr kirkjunni þannig að ekki var hægt að taka allar myndirnar úti en náðum þó nokkrum myndum,,en Palli tók bara studíóið með sér úteftir og setti upp stofu í tjarnaborg hehe og út komu eitthvað um 300 myndir sem eru alveg æðislegar =) held bara að allir hafi skemmt sér vel og stóðu vinkonur mínar fyrir ýmsum uppátækjum hehe sem mikið var hlegið af,,þær eru náttla bara yndislegar þessar elskur pabbi var svo með óvænt atriði en hann fékk Gulla Helga til að syngja ítalskt lag til ykkar veit ekkert hvað það heitir hehe en það var þvílíkt fallegt og fengu nokkur tár að renna eins og kannski mest allt brúðkaupið hehe þurfti alveg að bíta í tunguna í kirkjunni vildi ekki skemma förðunina hehe Arnar passaði sig að horfa ekki of mikið á mig því hann vissi í hvað stefndi hehe en eftir þetta allt saman þá fórum við bara heim í kotið okkar og þar voru en þessar yndislegu vinkonu mínar á ferðinni og voru búnar að gera herbergið okkar þvílíkt kósý sváfum svo fram að hádegi og sóttum þá krakkana og týndum allar gjafirnar svo heim......
Svo hefur lífið gengið sinn vanagang Addi farin á sjóinn reyndar að koma eftir viku og ég að vinna á fullu og í fjarnámi sem gengur bara ótrúlega vel svo er maður farin á fullt í ræktina eftir LANGT STOPP stefna tekin á þrekmeistarnn 10 nóv og vonandi fitness 24 nóv kemur í ljós hvernig gengur að skera,,reyndar mun auðveldara að skera núna heldur en síðast þar sem fitu % er heldur minni en þá en sjáum til með það.... en vonandi verðum við duglegri að blogga núna heldur slakar í þessu.... verið svo dugleg að kvitta....
Kveðja
Una
Athugasemdir
Hvernig er þetta eiginlega með myndirnar úr rvk stelpur ;)
Fjölmenna í pallatíma á morgun eða hvað ;) hehehe =)
Kamilla Mjöll (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 17:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.